Stjarnan-Haukar úrslit kv.

Ekki náðu stelpurnar að klára leikinn í Garðabænum og töpuðu 22-21. Þær voru komnar með góða forystu 11-16 og virtust hafa leikinn í höndum sér. En eitthvað klikkaði og Stjarnan náði að jafna og komast yfir með marki úr aukakasti eftir að leiktíma lauk.
Þó staðan sé 2-0 fyrir Stjörnunni eru úrslitin engan veginn ráðin. Það eru þrír leikir í boði og þá ætla stelpurnar okkar að sjálfsögðu að vinna. Áhorfendur geta fleytt liðinu langt og allir Haukar mæta að sjálfsögðu á leikina og hvetja stelpurnar alla leið.
Áfram Haukar