Fréttasafn

  • ÍBV-Haukar mfl.ka

    Ekki er hægt að segja að strákarnir okkar hafi gert góða ferð til Eyja í gær. Þeir áttu slakan dag og töpuðu sínum fyrsta leik í deildinni í vetur 34-30. Staðan í hálfleik var 17-11 fyrir ÍBV. Þrátt fyrir tapið eru strákarnir okkar á toppnum í Esso-deildinn og ætla sér að sitja þar áfram sem…

  • Haukar-HK mfl.ka.

    Strákarnir okkar unnu HK á Ásvöllum í kvöld 26-25. Leikurinn var nokkuð jafn, Haukarnir þó alltaf yfir, nema HK komst yfir 3-4 og jafnt var í hálfleik 14-14. Í seinni hálfleik leiddu okkar menn og voru þetta 2 til 4 mörkum yfir. Sigurinn var góður því fyrirfram mátti búast við að strákarnir okkar væru enn…

  • 3.fl.karla Bikarmeistarar

    Strákarnir okkar í 3.fl.karla fetuðu í fótspor meistaraflokksins og unnu sigur á Aftureldingu í úrslitum SS-bikarsins í Laugardalshöll í gær. Strákarnir okkar leiddu leikinn allan tímann og sigurinn var aldrei í hættu . Leikurinn endaði 29-23. Til hamingju með bikarmeistaratitilinn strákar, frábært hjá ykkur. Óhætt er að segja að framtíðin sé björt hjá okkur Haukum,…

  • Bikarmeistarar 2002

    Haukar urðu Bikarmeistar eftir stórsigur á Fram í Laugardalshöll í dag. Strákarnir okkar voru að spila fanta vel allan leikinn og tóku öll völd á vellinum fljótlega í fyrri hálfleik og slökuðu aldrei á, þrátt fyrir yfirburðastöðu. Staðan í hálfleik var 16-9 fyrir okkur og héldu strákarnir áfram í seinni hálfleik og sigruðu 30-20. Strákarnir…

  • SS-Bikarinn

    Nú fer óðum að styttast í úrslitaleikinn í bikarnum hjá mfl. karla þar sem strákarnir okkar etja kappi við félaga okkar í Fram og eins leikinn hjá 3. fl. karla Haukar-UMFA á sunudag. Því er ekki úr vegi að rifja upp gamlar ræður sem enn eru í fullu gildi Í Höllinni sjá leikmennirnir okkar um…

  • 3.fl.karla SS-bikarinn

    Eins og allir vita eru strákarnir í 3.fl. karla komnir í úrslit í SS-bikarnum. Þeir spila við Aftureldingu og verður leikurinn sunnudaginn 17. febr. kl. 13.30 í Laugardalshöll. Þennan dag verður einnig leikið til úrslita í 4.fl.kvenna kl. 12.00 Stjarnan-ÍR, ungl.fl. kvenna kl. 15.30 Grótta-KA og 2.fl. karla kl. 17.30 ÍR-Valur. Sama umgjörð verður á…

  • Haukastrákar í Höllinni

    Haukar bjóða alla Hafnfirðinga velkomna í Íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum næsta laugardag. Þar ætlum við öll að eiga ánægjulega stund og undirbúa okkur fyrir úrslitaleikinn í SS-bikarkeppninni, en leikurinn hefst klukkan 16:30. Húsið opnar klukkan 12:00 og verður ýmislegt til skemmtunar. Má nefna að boðið verður upp á andlitsmálun og veifugerð. Einnig hefur Æskulýðs- og…

  • Föndurkvöld

    Miðvikudaginn 13. febrúar ætlum við að föndra fyrir bikarleikinn á laugardag. Við hittumst upp á Ásvöllum kl. 17.30 og verðum til ca 20.00. Munið að taka með ykkur skæri. Tilvalið að taka með sér budduna og kaupa miða í forsölu. Mætum öll og skellum okkur í bikarskap.

  • SS-bikar 3.fl. karla

    Strákarnir okkar í 3.fl.karla unnu stórsigur á Val í kvöld í 4-liða úrslitum bikarkeppninnar. Haukarnir höfðu algjöra yfirburði í leiknum og unnu með 11 eða 12 mörkum. Þeir eru þar með komnir í úrslitaleikinn sem verður bikarhelgina 16. og 17. febr. í Laugardalshöll. Til hamingju strákar, frábært hjá ykkur.

  • Haukar-KA mfl.ka.

    Haukar og KA skildu jöfn á Ásvöllum í dag. Leikurinn var jafn allan tímann og staðan í hálfleik var 15-15 og síðari hálfleikur fór 15-15, sem sagt leikurinn endaði 30-30. Okkar menn byrjuðu bæði fyrri og seinni hálfleik vel en KA menn komust alltaf inn í leikinn og eins og fyrr segir endaði hann 30-30….