3.fl.karla Bikarmeistarar

Strákarnir okkar í 3.fl.karla fetuðu í fótspor meistaraflokksins og unnu sigur á Aftureldingu í úrslitum SS-bikarsins í Laugardalshöll í gær. Strákarnir okkar leiddu leikinn allan tímann og sigurinn var aldrei í hættu . Leikurinn endaði 29-23. Til hamingju með bikarmeistaratitilinn strákar, frábært hjá ykkur.

Óhætt er að segja að framtíðin sé björt hjá okkur Haukum, þessir ungu strákar voru að spila mjög vel, bæði í sókn og vörn og gaman verður að fylgjast áfram með þeim á næstu árum. Enn og aftur til hamingju með sigurinn strákar. Þið sýnduð og sönnuðuð enn einu sinni að Haukar eru bestir.