Fréttasafn

  • Breyting ESSO-deild karla

    Mótanefnd HSÍ gerir breytingar á leikjafyrirkomulagi ESSO-deildar karla. Leikir 15.umferðar verða færðir til 20. – 22.febrúar. Fyrstu leikir eftir EM í Svíþjóð verða þá þessir: Föstudagur 8. febrúar 2002 Austurberg kl. 20.00 ÍR – Víkingur Digranes kl. 20.00 HK – FH Höllin Akureyri kl. 20.00 Þór Ak. – Grótta KR Selfoss kl. 20.00 Selfoss –…

  • Þorrablót

    Þorrablót Hauka verður haldið á Ásvöllum föstudaginn 1. febrúar. Húsið opnar kl. 19.30 og miðaverð er aðeins kr. 2.500. Miðasala fer fram á Ásvöllum.

  • Ísland-Sviss

    Íslenska landsliðið fór á kostum í leiknum í dag er þeir hreinlega völtuðu yfir Svisslendinga sem áttu ekki roð í strákana okkar. Staðan í hálfleik var 15-9 og lauk leiknum með stórsigri okkar manna 33-22. Íslenska liðið var að spila einn sinn besta leik í fjölda ára, liðsheildin góð, vörnin frábær, markvarslan góð og sóknin…

  • EM Svíþjóð

    Strákarnir unnu frábæran sigur á Slóvenum í dag 31-25. Staðan í hálfleik var 15-11 fyrir Ísland. Þeir létu dramatískan endi á leikunum í gær þegar Spánverjar náðu að merja jafntefli, ekki hafa áhrif á sig í leikunum í dag og léku mjög vel og unnu öruggan sigur. Nú bíðum við bara spennt eftir leiknum við…

  • Fram-Haukar

    Stelpurnar sitja áfram sem fastast á toppnum í Essódeildinni. Þær unnu góðan sigur á Fram í Framheimilinu í dag. Staðan í hálfleik var 8-11 og endaði leikurinn 20-27 fyrir Hauka.

  • ÍBV-Haukar SS-bikar kv.

    Stelpurnar töpuðu leiknun í eyjum í gær 21-19. Þær áttu lélegan leik og þá sérstaklega í sókninni sem gekk engan veginn upp. Vörnin var lengstum í lagi og Jenny varði mjög vel. Bikardraumurinn er þar með úti en það þýðir ekkert annað en rífa sig upp fyrir næsta leik í deilinni sem er við Fram…

  • ÍBV-Haukar SS Bikarinn

    Stelpurnar spila í undanúrslitum SS-bikarsins við ÍBV út í eyjum á morgun kl. 15.00. Eflaust verður um hörkuleik að ræða þar sem okkar stelpur ætla sér ekkert annað en sigur. Við hvetjum alla Hauka sem ekki verða á leiknum að kveikja á sér og senda baráttustrauma til stelpnanna. Áfram Haukar.

  • Jón Freyr

    Við bjóðum Jón Frey Egilsson velkomin heim frá Danaveldi. Þessi knái hornamaður er byrjaður að æfa á fullu með strákunum og ætlar örugglega að láta til sín taka í vetur.

  • Myndir

    Komnar eru inn fjórar myndir frá vali íþróttamanns Hauka. Myndirnar eru frá hinum víðfræga Hauka-ljósmyndara Lárusi Karli. Farið er í „léttar nótur“ og þar er valið „myndasafn“. Fleiri myndir eru á leiðinni. 🙂