Fréttasafn

  • Haukarnir 2001

    Í árslok er ekki úr vegi að rifja upp nokkra minnisstæða atburði hjá meistaraflokkunum frá árinu sem er að líða. 4-liða úrslit í SS-bikarnum voru í byrjun febrúar. Þar unnu stelpurnar FH og strákarnir Selfoss og komust því bæði liðin í Bikarúrslitaleikina, sem fram fóru í Höllinni þann 17. febrúar. Þar urðu stelpurnar að sætta…

  • Fyrirliðarnir

    Að vanda fóru fyrirliðar meistaraflokanna fyrir sínum mönnum á árinu og hlutu þau viðurkenningar fyrir. Halldór Ingólfsson, fyrirliði mfl.karla var tilnefndur til Íþróttamanns Hafnarfjarðar. Hann var jafnframt valinn Íþróttamaður Hauka 2001 í árlegu hófi sem haldið var nú á gamlársdag. Harpa Melsteð, fyrirliði mfl.kvenna var valin handknattleikskona ársins af ÍSÍ. Til hamingju bæði tvö.

  • Haukar-ÍBV mfl.ka.

    Haukar unnu öruggan og sannfærandi sigur á ÍBV 36-27. Halldór skorað 9 mörk og Aron 6, aðrir minna. Haukar tóku snemma forystu og í hálfleik var staðan 17-12. Þetta hélst fram undir miðjan síðari hálfleik, þá skiptu Haukar um gír eins og fyrr segir og unnu sannfærandi sigur.

  • Dómaranámskeið

    Handknattleiksdeild Hauka stendur fyrir héraðsdómaranámskeiði í Íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum, dagana 4. til 6. okt. n.k. Tímasetning:Fimmtudagur 4. okt. kl. 18.00-21.00Föstudagur 5. okt kl. 18.00-21.00Laugardagur 6. okt. kl. 10.00-16.00Athugið – þetta er fyrsta dómaranámskeiðið sem farið verður yfir og kennt samkvæmt nýju reglum IHF.Áhugasamir vinsamlega skráið ykkur á tölvupósti til handknattleiksdeildar Hauka haukar@haukar.is en námskeiðið…

  • Handboltaskóli Hauka 2001

    Þá er loksins komið að því aftur! Handboltaskóli Hauka byrjar þriðjudaginn eftir verslunarmannahelgi. Skólinn verður starfræktur í íþróttahúsi Hauka á Ásvöllum og byrjar eins og fyrr segir þriðjudaginn 7. ágúst og stendur námskeiðið yfir til föstudagsins 17. ágúst. Umsjónarmaður skólans er Aron Kristjánsson. Leikur og léttleiki verða í fyrirrúmi en jafnframt því verður lögð áhersla…

  • Reykjavík open 2001

    Reykjavíkurmótið byrjar á morgun og eru bæði strákarnir og stelpurnar með lið. Strákarnir spila í Austurbergi en stelpurnar í Fjölnishúsinu. Leikir strákanna: 31.ágú 19:00 Haukar – Fjölnir 1.sept 9:00 FH – Haukar Leikir stelpnanna: 31. ágú 21:00 Haukar – ÍBV 1. sept 18:00 Haukar – KA/Þór 2. sept 9:00 ÍR – Haukar 2. sept 13:00…

  • Haukar „Meistarar meistaranna

    Stelpurnar unnu ÍBV 24-19 í leiknum um titilinn “meistari meistaranna” á Ásvöllum í gærkvöldi. Haukar byrjuðu leikinn mjög illa og komst ÍBV yfir 3-7, en þá settur skvísurnar okkar allt í gang, skoruðu átta mörk og komust yfir 11-7. Eftir það var aldrei spurning hver færi með sigur. Til hamingju með fyrstu dollu vetrarins.

  • Evrópukeppnin

    Það sem áður var búið að semja um við Pólverjana um að báðir leikirnir yrðu hér heima dagana 13. og 14. október hefur breyst þannig að fyrri leikurinn verður í Póllandi þann 7. október kl.17.00. Seinni leikurinn verður á Ásvöllum laugardaginn 13. okt. kl. 16.30

  • SS-Bikarkeppni karla

    Fréttatilkynning frá HSÍ. Dregið var í 32-liða úrslitum í SS-Bikarkeppninni í Handboltakvöldi í gær. Áætlað er að leikirnir fari fram miðvikudagin 10.okt. Eftirtalin lið mætast. Víkingur-b – Stjarnan Peran – ÍR-a Höttur – Grótta/KR-a ÍR-b – FH Ármann/Þróttur – ÍBV-a Selfoss – UMFA Fylkir – Víkingur-a Grótta/KR-b – UBK Þau lið sem sitja yfir eru…