Fréttasafn

  • Flugeldasala Hauka 20% afslátt

    Eins og undanfarin ár eru hinar vinsælu flugeldaávísanir til sölu hjá Handknattleiksdeild Hauka. Ávísanirnar verða til sölu í Íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum : Föstudaginn 28. desember kl. 10.00-20.00 Laugardaginn 29. desember kl. 10.00-20.00 Sunnudaginn 30. desember kl. 10.00-20.00 Við viljum benda á að flugeldaávísanirnar sem fást á 1.000 krónur gilda sem úttekt á flugeldamörkuðum Björgunarsveitar Hafnarfjarðar…

  • Breytingar

    Heimasíðan hefur nú verið tekin niður og mun opna aftur seinnipart sumars, en þangað til mun þetta líta svona út og vonandi mun verða eitthvað af fréttum………. 🙂

  • Evrópukeppnin

    Evrópukeppnin Haukar hafa samið við Pólverjana í KS Strzelec-Lider Market og verða báðir leikirnir spilaðir hér heima. Fyrri leikurinn verður laugardaginn 13. okt. kl. 16.30 og seinni leikurinn sunnudaginn 14. okt. kl. 20.00

  • Óskar kominn heim

    Óskar Ármannsson hefur verið ráðinn þjálfari 2., 3. og 4.fl.karla. Við bjóðum hann velkominn til starfa og vitum að hann á eftir að gera góða hluti með þessa stráka. (Aldrei að vita nema hann taki líka fram skóna að nýju og spili úrslitaleikinn!!!)

  • Sjallamótið 2001

    Eins og alþjóð veit þá tóku Haukastrákarnir þátt í Sjallamótinu á Akureyri nú um helgina. Þeir enduðu í öðru sæti á eftir heimamönnum í KA. Leikirnir voru fimm og eru úrslitin svohljóðandi: Haukar – ÍR 16 : 13 Þór – Haukar 14 : 17 Grótta/KR – Haukar 17 : 12 Haukar – Víkingur 21 :…

  • Í upphafi tímabils ……..

    Nú er handboltavertíðin loksins að fara af stað. Strákarnir eiga fyrsta leik á morgun, miðvikudag kl. 20.00 við Víking í Víkingsheimilinu. Fyrsti leikur í deildinni hjá stelpunum er fyrir norðan við KA/Þór 3.október. Þær taka þó forskot á sæluna á fimmtudaginn kl. 20.00 og spila við ÍBV um titilinn “Meistari meistaranna”. Margir áhorfendur bíða sjálfsagt…

  • Haukar eru bestir !!!

    Á fréttamannafundi HSÍ í gær, spáðu fulltrúar félaga í 1.deild karla og kvenna um lokastöðu á komandi leiktímabili. Fáum kom á óvart að okkur Haukum er spáð 1. sæti, bæði karla og kvenna. En spá er bara spá, enginn leikur er unninn fyrirfram og titlarnir engan veginn öruggir í húsi. Það er þó alveg á…

  • Jólakveðja

    Sendum öllum Haukum nær og fjær sem og öðrum landsmönnum bestu óskir um gleðileg jól og farsæld og frið á komandi ári. Þökkum stuðning og samstarf á árinu sem er að líða.