Haukar eru bestir !!!
Á fréttamannafundi HSÍ í gær, spáðu fulltrúar félaga í 1.deild karla og kvenna um lokastöðu á komandi leiktímabili. Fáum kom á óvart að okkur Haukum er spáð 1. sæti, bæði karla og kvenna. En spá er bara spá, enginn leikur er unninn fyrirfram og titlarnir engan veginn öruggir í húsi. Það er þó alveg á hreinu að bæði strákarnir og stelpurnar ætla að verja sína titla og gott betur. Áfram Haukar. Spáin hjá mfl.karla er þessi:1. Haukar2. KA3. Afturelding4.-5. FH4.-5. Grótta/KR6. Valur7. ÍR8. Selfoss9. ÍBV10. HK11. Fram12. Stjarnan13. Þór14. VíkingurSpáin hjá mfl.kv. er þessi:1. Haukar2. Grótta/KR3.-4.ÍBV3.-4.Valur5. Víkingur6. Stjarnan7. FH8. KA/Þór9. Fram
