Fréttasafn

  • Vandamál hjá mfl.karla

    Á stjórnarfundi í gærkvöldi var rætt um vandamálin hjá mfl.karla en engin niðurstaða fékkst. Þjálfarar meistaraflokks karla hafa ekki verið öfundsverðir að stýra æfingum undanfarið. Það álag sem lagt er á þjálfarana er með eindæmum, en vonandi komast þeir heilir frá ósköpunum. Þeir hafa verið með tíu stykki örvhenta leikmenn í hópnum. Spáið í það,…

  • EM-hópurinn valinn

    Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari hefur valið landsliðshópinn fyrir EM í handbolta sem hefst í Svíþjóð þann 25. janúar. Markverðir: Bjarni Frostason, Haukum Guðmundur Hrafnkelsson, Pallamano Conversano Horna- og línumenn: Guðjón Valur Sigurðsson, TUSEM Essen Gústaf Bjarnason, GWD Minden Einar Örn Jónsson, Haukum Sigfús Sigurðsson, Val Róbert Sighvatsson, HSG Düsseldorf Útileikmenn: Aron Kristjánsson, Haukum Dagur Sigurðsson, Wakunaga…

  • Ísland-Þýskaland

    Landsliðið vann báða leikina við Þjóðverja sem fram fóru í Laugardalshöll um helgina. Lauk báðum leikjum með 28-24 sigri Íslands. Í fyrri leiknum höfðum við tölverða yfirburði en seinni leikurinn var jafnari, þar sem liðin skiptust á að hafa forystu. En í lokin þegar staðan var 24-24 sögðu strákarnir okkar, hingað og ekki lengra og…

  • Haukar-KA/Þór

    Stelpurnar héldu sigurgöngunni áfram og unnu stórsigur á KA/Þór á Ásvöllum í dag. Þær voru undir 0-1 í byrjun en tóku síðan öll völd á vellinum, komust í 10-3, 16-4 og staðan í hálfleik var 20-6. Stelpurnar okkur réðu seinni hálfleik eins og þeim fyrri, 27-11, 30-15 og leiknum lauk 35-16.

  • Veiðikynning

    Haukamenn eru farnir að anda með tálknunum, því sá silfraði er farinn að hugsa sér til hreyfings. Mánudagskvöldið 14. janúar n.k. kl. 20.30 verður kynning í anddyri veislusalarins að Ásvöllum á Húseyjarkvísl í Skagafirði. Nýtt veiðifélag, Veiðifélagið við Lækinn, sem er nýr leigutaki til næstu ára að Húseyjarkvísl, mun kynna og bjóða veiðileyfi fyrir komandi…

  • Haukar-Víkingur mfl.kv.

    Haukastelpur byrjuðu árið vel, unnu Víking 20-19 á Ásvöllum í dag. Okkar stelpur byrjuðu mun betur, komust í 4-0 en Víkingar komust fljótt inní leikinn 6-5, en Haukar náðu aftur yfirhöndinni og staðan í hálfleik var 11-7. Haukastelpur byrjuðu seinni hálfleikinn mjög vel og komust í 14-7 og allt útlit fyrir algjört bust og rólegan…

  • Hannes Þ. Sigurðsson

    Við óskum Hannesi til hamingju með að vera á leiðinni í atvinnumennskuna í knattspyrnu. Hannes er aðeins 18 ára og sonur Halldóru og fóstursonur Ingimars, sem gerði garðinn frægan í boltanum á árum áður. Hannes spilaði með yngri flokkum hjá okkur í handboltanum og var mjög efnilegur og hefði trúlega farið í atvinnumennsku í handbolta…

  • Gústi og Hildur

    Lítill fugl hvíslaði að okkur að Gústaf Bjarna og Hildur Lofts hefðu “látið verða af því” rétt fyrir áramótin. Hætt að lifa í synd og búin að gifta sig . Til hamingju með hjónabandið og bestu óskir með framtíðina.

  • A-landslið karla

    Fréttatilkynning frá HSÍ. Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir í þau verkefni sem framundan er hjá A-landsliði karla. Liðið mun taka þátt í móti í Noregi 4.-6.janúar n.k. og leika tvo leiki við Þjóðverja í Laugardalshöll 12. og 13.janúar. Eftir þá leiki mun Guðmundur Þ. Guðmundsson tilkynna þann hóp sem fer á EM í Svíþjóð. Markverðir:…