Vandamál hjá mfl.karla
Á stjórnarfundi í gærkvöldi var rætt um vandamálin hjá mfl.karla en engin niðurstaða fékkst.
Þjálfarar meistaraflokks karla hafa ekki verið öfundsverðir að stýra æfingum undanfarið. Það álag sem lagt er á þjálfarana er með eindæmum, en vonandi komast þeir heilir frá ósköpunum. Þeir hafa verið með tíu stykki örvhenta leikmenn í hópnum. Spáið í það, tíu leikmenn sem gera allt öfugt miðað við „eðlilega“ leikmenn. Það sem reddað hefur Viggó, þ.e. að honum hefur tekist að halda ró sinni og verið með skálmarnar niðri, enda er hann sjálfur örvhentur – En aumingja Palli Ólafs, æfing með einum örvhentum þjálfara og tíu örvhentum leikmönnum, samtals ellefu „leftíar“ – Hversu mikið er hægt að leggja á menn !!!!
