Ekki er hægt að segja að strákarnir okkar hafi gert góða ferð til Eyja í gær. Þeir áttu slakan dag og töpuðu sínum fyrsta leik í deildinni í vetur 34-30. Staðan í hálfleik var 17-11 fyrir ÍBV. Þrátt fyrir tapið eru strákarnir okkar á toppnum í Esso-deildinn og ætla sér að sitja þar áfram sem fastast.