Fréttasafn

  • Endurnýjun samninga

    Í dag undirrituðu landsliðsmennirnar Halldór Ingólfsson og Bjarni Frostason nýja samninga við félagið sitt Hauka, Halldór til þriggja ára og Bjarni til eins árs. Það er mikil ánægja innan stjórnar að þessir landsliðsmenn spili enn og aftur fyrir félagið. Þeir eru tveir af traustu hlekkjunum í frábæru liði Haukanna og stuðningsmenn fagna þessu án efa.

  • Aðalfundur

    Aðalfundur handknattleiksdeildar Hauka verður haldinn á Ásvöllum laugardaginn 11. maí n.k. kl. 11.00. Dagskrá: vengjulega aðalfundarstörf. Stjórnin

  • Lokahóf handknattleiksdeildar

    Lokahóf handknattleiksdeildarinnar verður haldið miðvikudaginn 8. maí næstkomandi. Stuðningsmenn og velunnarar eru hvattir til að mæta. Miðaverði er stillt í hóf og er aðeins 1.000 kr. og er innifalinn veislumatur og skemmtiatriði. Þar sem að skammur tími er til stefnu verða miðarnir seldir við innganginn. Húsið verður opnað klukkan 19:30 og borðhald hefst 20:30.

  • Nýr leikmaður til Haukanna

    Í kvöld gekk hinn bráðefnilegi hornamaður Þórir Ólafsson til liðs við Hauka. Þórir er uppalinn Selfyssingur og hefur leikið með þeim undanfarin ár. Þórir mun leika með Haukum næstu þrjú tímabil hið minnsta og bjóðum við Haukamenn Þóri velkominn og vonum við að hann njóti sín í Haukafjölskyldunni. Velkominn Þórir.Á myndinni eru Viggó, Þórir og…

  • ÍSLANDSMEISTARAR 2002

    Stelpurnar okkar unnu frábæran sigur á Stjörnunni í kvöld 19-18 á Ásvöllum og unnu þar með ÍSLANDSMEISTARATITILINN 2002. Leikurinn var æsispennandi og hin mesta skemmtun fyrir hina fjölmörgu áhorfendur sem lögðu leið sína á Ásvelli. Leikurinn var nokkuð jafn til að byrja með en stelpurnar okkar þó alltaf skrefinu á undan og komust í 10-6…

  • Stjarnan-Haukar úrslit

    Stelpurnar okkar unnu frábæran stórsigur á Stjörnunni í Garðabænum í dag 18-25. Þær komu mjög vel stemmdar til leiks og stjórnuðu leiknum frá upphafi og ætluðu sér ekkert annað en sigur og það gekk eftir. Fyrri hálfleikur var mjög góður, vörnin small og þá kom markvarslan og hraðaupphlaupin og staðan var 9-16 fyrir okkur í…

  • KA-Haukar 4-liða úrslit

    Jæja, þá er því lokið. Eins og alþjóð líklega veit þá töpuðu strákarnir okkar fyrir KA 27-26 fyrir norðan í gærkvöldi og féllu þar með úr keppni. Leikurinn var jafn og spennandi og og skiptust liðin á að hafa forystu í fyrri hálfleik sem lauk með jafntefni 14-14. Í seinni hálfleik náðu norðanmenn yfirhöndinni en…

  • Haukar-Stjarnan úrslit kv.

    Sumarið er komið og stelpurnar unnu frábæran sigur á Stjörnunni á Ásvöllum í dag. Leikurinn endaði 25-22 og staðan í hálfleik var 11-8. Leikurinn var nokkuð jafn en stelpurnar okkar þó alltaf með yfirhöndina. Mikil spenna var í lokin er Stjarnan náði að jafna 18-18, 19-19, 20-20 en Haukastelpur héldu haus og náðu aftur yfirhöndinni…

  • Haukar-KA 4-liða úrslit

    Seinni hálfleikurinn var vægast sagt ömurlegur hjá öllum nema KA-mönnum. Menn komu engan veginn tilbúnir úr leikhléi og misstu allan damp. Staðan í lok venjulegs leiktíma var 27-27 og því framlengt og höfðu KA-menn yfirhöndina og töpuðum við 32-34. En það kemur leikur eftir þennan leik og strákarnir mæta galvaskir norður yfir heiðar og taka…

  • Haukar – KA hálfleikstölur

    Staðan í hálfleik er 16-8 fyrir heimamenn. Gestirnir náðu góðri byrjun og komust í 0-3 en strákarnir tóku sig saman og náðu yfirhöndinni. Jón Karl og Aron hafa verið fremstir í sóknarleik okkar manna og vörnin góð. Í lok hálfleiksins skoraði Aron svo úr glæsilegu sirkusmarki. 00:44 || 0 – 1 KA: Halldór J. Sigfússon…