Fréttasafn

  • Haukar-Víkingur mfl.kv.

    Stelpurnar unnu frábæran sigur á Víkingi á Ásvöllum í kvöld í fyrsta leik í 4-liða úrslitum. Lokatölur urðu 30-16. Leikurinn var nokkuð jafn til að byrja með, en Haukar þó alltaf 2 til 4 mörkum yfir. Þegar um 10 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik sögðu okkar stelpur hingað og ekki lengra, skelltu í lás…

  • Fréttatilkynning

    Handknattleiksdeild Hauka hefur endurnýjað samninga við þjálfara meistaraflokka karla og kvenna. Gerður hefur verið nýr þriggja ára samningur við Viggó Sigurðsson og eins árs samningur við Gústaf Adolf Björnsson.Árangur meistaraflokks karla undir stjórn Viggós hefur verið frábær síðustu tvö árin eins og allir sem fylgjast með handbolta vita. Flestir tiltlar sem hafa verið í boði…

  • 4-liða úrsl. kv. – BREYTING

    Vegna þess að leikmenn Gróttu/KR eru strandaglópar í Vestmannaeyjum, þá hefur leikdögum í 4ra liða úrslitum verið breytt og verða sem hér segir: 1. leikur Ásvellir fimmtudaginn 11. apríl kl. 20:00 2. leikur Víkin sunnudaginn 14. apríl kl. 14:00 3. leikur ef til kemur á Ásvöllum þriðjudaginn 16. apríl kl. 20:00

  • 4-liða úrslit kvenna

    Nú er ljóst að stelpurnar eiga við Víking í 4-liða úrslitum. Fyrsti leikurinn verður á Ásvöllum á miðvikudag kl. 20.00, annar leikur í Víkinni á föstudag kl. 20.00 og ef til þriðja leiks kemur verður hann á sunnudag kl. 14.00 á Ásvöllum. Búast má við mjög erfiðum en jafnframt fjögugum og skemmtilegum leikjum og þurfa…

  • Fram-Haukar mfl.kv 8-liða úrs

    Stelpurnar unnu sigur á Fram í Framheimilinu í dag. Leikurinn endaði 30-23, staðan í hálfleik var 14-14. Framstelpur voru sprækar framan af og leikurinn jafn en í seinni hálfleik fóru Haukastelpur að taka á í vörninni og sigruðu örugglega eins og fyrr segir 30-23. Stelpurnar hafa þannig unnið 8-liða úrslitin 2-0 og mæta annað hvort…

  • Haukar-Fram mfl.kv. 8-liða úrs

    Stelpurnar unnu stórsigur á Framdömum á Ásvöllum í kvöld í fyrsta leik í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Staðan í hálfleik var 18-8 og endaði leikurinn 31-20. Haukastelpurnar höfðu yfirhöndina allan leikinn, Fram komst reyndar í 0-1 en eftir það tóku Haukarnir völdin og sigurinn var aldrei í hættu. Markahæstar voru Harpa með 8 mörk og Hanna…

  • GróttaKR-Haukar mfl.ka.

    Þrátt fyrir að Deildarmeistaratitilinn væri í höfn, slökuðu strákarnir okkar hvergi á og héldu sigurgöngunni áfram og unnu GróttuKR á Nesinu í kvöld. Leikurinn endaði 25-33 fyrir okkar mönnum, staðan í hálfleik var 12-15 fyrir okkur. Haukarnir höfðu yfirhöndina allan leikinn og virtist sigurinn aldrei í hættu. Þeir voru að spila fínan bolta, bæði sóknin…

  • Leikir framundan

    Nú fer páskasælunni senn að ljúka og boltinn að rúll aftur. Strákarnir eiga leik strax á morgun, þriðjudag , við GróttuKR á Nesinu kl. 20.00. Við hvetjum alla til að mæta og hrista af sér páskaeggjaátið og sýna líf á pöllunum. Spennan er svo að fara af stað hjá stelpunum, en úrslitakeppnin byrjar hjá þeim…