Tristan Snær í U16 ára landsliðinu.
Jörundur Áki Sveinsson landsliðs þjálfari U16 hefur valið 32 leikmenn til æfinga 15 – 17 febrúar næstkomandi og er Tristan Snær Daníelsson í hópnum. Tristan Snær sem er fæddur árið 2005 og er leikmaður 3.flokks Hauka. Hefur spilað sem sóknarmaður og getur leyst allar stöður fremst á vellinum. Knattspyrnudeild Hauka óskar Tristan innilega til hamingju…
