Anna, Guðrún Inga, Ragnheiður og Rut eru í U15 ára landsliðishópi

Ólafur Ingi Skúlason landsliðsþjálfari U15 kvenna hefur valið leikmannahóp til æfinga 10-12 febrúar næstkomandi og eiga Haukar þar 4 fulltrúa. Þær Anna Rut Ingadóttir, Guðrún Inga Gunnarsdóttir, Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir og Rut Sigurðardóttir.

Þær Guðrún Inga og Anna Rut eru fæddar árið 2006 og eru leikmenn 3.flokks, en þær Rut og Ragnheiður eru fæddar árið 2007 og eru enn í 4.flokki Hauka. Gríðalega hæfileikaríkar stelpur sem eiga framtíðina fyrir sér.

Knattspyrnudeild Hauka óskar stelpunum innilega til hamingju með valið og óskar þeim góðs gengis.

Guðrún Inga – Ljósmynd: Hulda Margrét

Anna Rut Ingadóttir – Ljósmynd: Hulda Margrét

Ragnheiður – Ljósmynd: Hulda Margrét

Rut Sigurðardóttir – Ljósmynd Hulda Margrét