Mikaela framlengir við knattspyrnudeildina til næstu þriggja ára

Mikaela Nótt Pétursdóttir hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild Hauka til næstu þriggja ára.

Mikaela, sem er fædd árið 2004 og er því á sautjánda ári, spilaði alls 20 leiki í deild og bikar á síðasta tímabili og þrjá leiki tímabilið 2019.

Hún var lykil leikmaður í liði meistaraflokks kvenna á síðasta tímabili þrátt fyrir ungan aldur og það verður afar spennandi að fylgjast með Mikaelu taka enn stærri skref í sinni framþróun á komandi tímabili.

Mikaela á að baki fimm leiki með U16 og U17 landsliðum Íslands en hún var á dögunum valin til að taka þátt í U19 landsliðsæfingum sem er mikil viðurkenning.

Stjórn knattspyrnudeildar fagnar innilega nýjum samningi við Mikaelu.

Mikaela Nótt Pétursdóttir
Ljósm. Hulda Margrét