Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Þrettándagleði á Ásvöllum

    Jólin verða kvödd með dansi og söng á glæsilegri Þrettándahátíð á Ásvöllum í kvöld mánudaginn 6. janúar 2003. Skemmtidagskrá hefst á Ásvöllum kl.19:00 á svæðinu fyrir framan nýja íþróttahúsið. Álfabrenna, söngur, glens og gaman með jólasveinum, Grýlu, Leppalúða og púkum. Kaffi, heitt kakó, blys og kyndlar til sölu á vægu verði. Ókeypis aðgangur að svæðinu,…

  • Íþróttamaður ársins 2002

    Í kvöld var Ólafur Stefánsson, handboltakappi kjörinn Íþróttmaður ársins 2002 í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna. Hann átti frábært ár, bæði með liði sínu Magdeburg og eins með landsliðinu. Ólafur var jafnframt handboltamaður ársins 2002. Inga Fríða Tryggvadóttir, línu- og varnarjaxlinn okkar frábæri var útnefnd Handboltakona ársins 2002. Við óskum þeim til hamingju svo og öllum sem…

  • Íþróttahátíð Hafnarfjarðar

    Í dag var Íþróttahátíð Hafnarfjarðar haldin í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Þar voru hafnfirsku íþróttafólki veittar viðurkenningar fyrir góða frammistöðu og ástundun og einnig voru heiðraðir þeir sem unnu meistaratitla á árinu 2002. Íþróttamaður Hafnarfjarðar 2002 var valin Þórey Edda Elísdóttir. Strákarnir okkar í 3.fl. ka. fengu viðurkenningu fyrir Íslandsmeistaratitil og Bikarmeistaratitil 2002. Meistaraflokkur karla fékk…

  • Jólamót mfl.kv.

    Vert er að vekja athygli á jólamóti í meistaraflokki kvenna sem Haukar, {Tengill_11} og {Tengill_12} standa fyrir. Frítt verður inn á alla leiki og hvetjum við áhugafólk að standa upp frá jólaborðinu og fylgjast með kvennahandboltanum eins og hann gerist bestur. Þátttökulið: Haukar / ÍBV / Víkingur Leiktími: 2×25 mín. Laugardagur 28. des / Ásvellir:…

  • Æfingahópur Guðmundar

    Samkvæmt frétt á heimasíðu HSÍ hefur Guðmundur Þ Guðmundsson valið 26 leikmenn til æfinga fyrir HM í Portúgal 2003. Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson, Pallamano Conversano Elvar Guðmundsson, Ajax/Farum Roland Eradze, Valur Birkir Ívar Guðmundsson, HAUKAR Horna- og línumenn: Guðjón Valur Sigurðsson, TUSEM Essen Gústaf Bjarnason, GWD Minden Einar Örn Jónsson, Wallau Massenheim Sigfús Sigurðsson, SC Magdeburg…

  • Valur-Haukar ESSÓ deild karla

    Strákarnir töpuðu illa fyrir Val á Hlíðarenda í gærkvöldi 35-26. Staðan í hálfleik var 21-12. Lítið er um leikinn að segja, menn hafa vart séð strákana spila svona illa. Vörnin var ekki til staðar og lítill vandi fyrir heimamenn að labba í gegn. Sem sagt afspyrnulélegur handbolti hjá okkar mönnum. P.S. Smá fróðleiksmoli til þeirra…

  • Valur-Haukar í kvöld

    Minnum á leikinn hjá strákunum í kvöld Valur-Haukar kl. 20.00 á Hlíðarenda. Tilvalið að taka sér frí frá jólaamstrinu og sjá þessi tvö KFUM lið takast á í bróðurlegum kærleik. Búast má við tölverðum átökum, hraða, spennu og látum og því upplagt fyrir áhorfendur að mæta á pallana, “öskra” og hvetja sitt lið og og…

  • Myndir

    Myndir frá Spánarferðinni í boði didda má finna undir „Myndir“ hér vinstra megin. Svo tóku Spánverjarnir nokkrar myndir líka þær og umsögn þeirra um leikinn má finna þýdda á ensku hér og hér er umsögn um heimaleikinn okkar.