Valur – Haukar í kvöld

Klukkan 20:00 í kvöld hefst leikur Vals og Hauka í nýrri Vodafone höll Valsmanna.
Haukamann!! Fjölmennum á leikinn og styðjum strákanna okkar.

Að sögn Arons Kristjánssonar, þjálfara okkar manna, eru allir leikmenn liðsins heilir fyrir leikinn í kvöld fyrir utan Kára Kristján Kristjánsson sem verður frá í mánuð til viðbótar.
Aron segir að markmið vetrarins sé að vera með í baráttunni um alla titla sem í boði eru.

Valur-Haukar í kvöld

Minnum á leikinn hjá strákunum í kvöld Valur-Haukar kl. 20.00 á Hlíðarenda. Tilvalið að taka sér frí frá jólaamstrinu og sjá þessi tvö KFUM lið takast á í bróðurlegum kærleik. Búast má við tölverðum átökum, hraða, spennu og látum og því upplagt fyrir áhorfendur að mæta á pallana, “öskra” og hvetja sitt lið og og losna um leið við smá jólastress.
Mætum og styðjum strákana okkar. Áfram Haukar