Valur-Haukar ESSÓ deild karla

Strákarnir töpuðu illa fyrir Val á Hlíðarenda í gærkvöldi 35-26. Staðan í hálfleik var 21-12. Lítið er um leikinn að segja, menn hafa vart séð strákana spila svona illa. Vörnin var ekki til staðar og lítill vandi fyrir heimamenn að labba í gegn. Sem sagt afspyrnulélegur handbolti hjá okkar mönnum.

P.S.
Smá fróðleiksmoli til þeirra sem voru á leiknum:
Dómarar reka menn útaf fyrir að slá andstæðinginn.