Í kvöld var Ólafur Stefánsson, handboltakappi kjörinn Íþróttmaður ársins 2002 í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna. Hann átti frábært ár, bæði með liði sínu Magdeburg og eins með landsliðinu. Ólafur var jafnframt handboltamaður ársins 2002.
Inga Fríða Tryggvadóttir, línu- og varnarjaxlinn okkar frábæri var útnefnd Handboltakona ársins 2002.
Við óskum þeim til hamingju svo og öllum sem viðurkenningar hlutu.