Þrettándagleði á Ásvöllum

Jólin verða kvödd með dansi og söng á glæsilegri Þrettándahátíð á Ásvöllum í kvöld mánudaginn 6. janúar 2003.
Skemmtidagskrá hefst á Ásvöllum kl.19:00 á svæðinu fyrir framan nýja íþróttahúsið.
Álfabrenna, söngur, glens og gaman með jólasveinum, Grýlu, Leppalúða og púkum.
Kaffi, heitt kakó, blys og kyndlar til sölu á vægu verði. Ókeypis aðgangur að svæðinu, bílastæði við íþróttahúsið.
FLUGELDASÝNING
Skemmtun fyrir alla fjölskylduna.