Íþróttahátíð Hafnarfjarðar

Í dag var Íþróttahátíð Hafnarfjarðar haldin í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Þar voru hafnfirsku íþróttafólki veittar viðurkenningar fyrir góða frammistöðu og ástundun og einnig voru heiðraðir þeir sem unnu meistaratitla á árinu 2002. Íþróttamaður Hafnarfjarðar 2002 var valin Þórey Edda Elísdóttir.

Strákarnir okkar í 3.fl. ka. fengu viðurkenningu fyrir Íslandsmeistaratitil og Bikarmeistaratitil 2002. Meistaraflokkur karla fékk viðurkenningu fyrir Bikarmeistaratitil 2002 og Meistaraflokkur kvenna fyrir Íslandsmeistaratitil 2002. Þá voru þau Aron Kristjánsson mfl.ka. og Hanna Guðrún Stefánsdóttir mfl.kv. tilnefnd til Íþróttamanns Hafnarfjarðar.

Til hamingju