Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Hanna heiðruð af HSÍ og Hafnarfjarðarbæ

    Það er óhætt að segja að Hanna Guðrún Stefánsdóttir hafi sópað til sín viðurkenningum um áramótin. Eins og þegar hefur verið greint frá hér á síðunni var hún valin íþróttakona Hafnarfjarðar en Haukar tilnefndu Hönnu og Birki Ívar Guðmundsson til þeirrar viðurkenningar sem handknattleiksfólk Hauka á árinu 2009. Handknattleikssamband Íslands valdi hana síðan handknattleikskonu ársins. Haukasíðan…

  • Hanna Guðrún íþróttakona Hafnarfjarðar

    Í gærkvöldi fór fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu Íþróttahátíð Hafnarfjarðar fyrir árið 2009. Þetta er árlegur viðburður þar sem Íslandsmeistarar íþróttafélaga bæjarins fá viðurkenningu og einstaka íþróttamenn eru verðlaunaðir fyrir góðan árangur á árinu. Hápunkturinn er þó alltaf þegar íþróttamaður og íþróttakona Hafnarfjarðar er valinn. Í ár var það handboltakonan Hanna Guðrún Stefánsdóttir, leikmaður Hauka,…

  • Haukafólk í yngri landsliðum

    Landsliðsþjálfarar yngri landsliða HSÍ hafa valið fimm æfingahópa yngri landsliða. Hóparnir sem um ræðir eru hópar 16 ára og yngri stúlkna og drengja, 17 ára landslið kvenna auk þess sem 18 ára og 20 ára landslið karla hafa verið valin. Hóparnir munu æfa í næstu viku.   Haukafólk á fólk í öllum þessum landsliðum og…

  • Haukar mæta Akureyri og Fram

    Eins og fram hefur komið á síðunni í dag leika bæði lið Hauka til úrslita í deildarbikar Flugfélags Íslands og HSÍ á  morgun. Leikirnir fara fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu en leikur strákanna hefst klukkan 18.00 og leikur stúlknanna tveimur klukkustundum síðar, eða klukkan 20.00. Nú er ljóst hverjir verða mótherjar Hauka í úrslitaleikjunum tveimur. Strákarnir…

  • Bæði lið Hauka í úrslit deildarbikars

    Í dag fer fram undanúrslit deildarbikars Flugfélags Íslands og HSÍ en leikið er á Strandgötu. Nú hafa verið leiknir tveir leikir, tveir leikir milli Hauka og Vals. Fyrri leikurinn, sem hófst klukkan 12.00, var á milli kvennaliða félaganna og síðari leikurinn, sem hófst klukkan 14.00, var á milli karlaliða félaganna.   Í leik kvennaliðanna sigraði…

  • Deildarbikarinn 2009

    Milli jóla og nýárs mun fara fram keppni um Deildarbikar HSÍ en sú keppni hefur verið haldin á þessum tíma undanfarin tvö ár. Í ár ber keppnin heitið Flugfélags Íslands Deildarbikarinn. Fjögur efstu lið í N1 deildum karla og kvenna fara í keppnina og er miðað við stöðu liðanna eftir seinustu umferð fyrir jól þar sem allir…

  • Úrvalslið N1-deildar karla og kvenna tilkynnt

    Í gær var tilkynnt úrvalslið karla og kvenna í N1-deildunum í fyrstu sjö umferðunum. Einnig var besti leikmaður, besti þjálfarinn og besta umgjörðin tilkynnt. Í úrvalsliði kvenna áttu Haukar einn fulltrúa en það var Hanna Guðrún Stefánsdóttir. Í úrvalsliði karla voru þeir Sigurbergur Sveinsson og Freyr Brynjarsson valdir úr liði Hauka sem situr á toppi…

  • Haukar leika báða leiki gegn Naturhouse Ciudad La Rioja á útivelli

    Samkomulag hefur tekist á milli Hauka og Naturhouse Ciudad La Rioja um að báðir leikir liðanna í fjórðu umferð Evrópukeppni félagsliða fari fram í Logrono á Norð-austur Spáni dagana 20. og 21. febrúar n.k. Strákarnir munu halda utan 18. febrúar og ráðgert er að koma heim 22. febrúar. Meginástæða þess að Haukar velja að gera…