Haukar mæta Akureyri og Fram

Haukastúlkur mæta liði Stjörnunnar í úrslitum deildarbikarsins        mynd: Pétur HaraldssonEins og fram hefur komið á síðunni í dag leika bæði lið Hauka til úrslita í deildarbikar Flugfélags Íslands og HSÍ á 

morgun. Leikirnir fara fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu en leikur strákanna hefst klukkan 18.00 og leikur stúlknanna tveimur klukkustundum síðar, eða klukkan 20.00.

Nú er ljóst hverjir verða mótherjar Hauka í úrslitaleikjunum tveimur. Strákarnir munu leika gegn liði Akureyrar en lið þeirra vann góðan sigur gegn liði FH

 í dag, 35-26. Stúlkurnar munu hins vegar mæta liði Fram eftir að þær síðar nefndu sigruðu lið Stjörnunnar 26-24 í æsispennandi leik.