Deildarbikarinn 2009

Deildarbikarinn 2009Milli jóla og nýárs mun fara fram keppni um Deildarbikar HSÍ en sú keppni hefur verið haldin á þessum tíma undanfarin tvö ár. Í ár ber keppnin heitið Flugfélags Íslands Deildarbikarinn. Fjögur efstu lið í N1 deildum karla og kvenna fara í keppnina og er miðað við stöðu liðanna eftir seinustu umferð fyrir jól þar sem allir hafa leikið jafn marga í leiki. Karla- og kvennalið Hauka taka þátt og mæta bæði liðin Val sunnudaginn 27. nóvember kl. 12 og 14 í Strandgötunni.

Í karlaflokki taka þátt Haukar, FH, Akureyri og Valur og í kvennaflokki er það Valur, Stjarnan, Fram og Haukar.

Leikið verður í Íþróttahúsinu Strandgötu í Hafnarfirði.

Miðaverð er 1.000 kr fyrir hvorn dag, fyrir 16 ára eldri, en frítt inn fyrir 15 ára og yngri.

Allir leikir mótsins verða sýndir beint á www.sporttv.is.

 

Deildarbikarinn 2009