Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Haukastelpur náðum fram hefndum

    Haukastelpur mættu gríðarlega einbeittar til leiks þegar Stjörnustúlkur komu í heimsókn á Ásvelli á laugardaginn. Þær voru augljóslega staðráðnar í að ná fram hefndum eftir naumt tap í Garðabænum í bikarnum fyrr í vikunni. Þétt vörn og góð markvarsla lögðu grunninn að öruggum sigri sem var síst of stór, 26-22, en Haukastelpurnar leiddu um tíma…

  • Haukastelpur úr leik í bikar eftir háspennuleik

    Dramatíkin ræður víðar ríkjum en á EM í Austurríki því tvær framlengingar þurfti til svo að úrslit réðust í leik Stjörnunnar og Hauka í átta liða úrslitum Eimskipsbikarkeppni kvenna í gærkvöldi. Haukastelpur spiluðu sinn besta leik á tímabilinu og voru grátlega nærri því að slá bikarmeistarana úr leik á eigin heimavelli. Þegar skammt var til loka venjulegs…

  • Eiðsmótið fer fram næstu helgi

    Næstu helgi fer fram Eiðsmótið 2010, fjögurra liða mót þar sem taka þátt meistaraflokkar karla frá Haukum, Fram, Gróttu og Akureyri. Mótið er tileinkað minningu Eiðs Arnarsonar, fyrrverandi formanni handknattleiksdeildar Hauka. Leikið verður í Íþróttahúsinu við Strandgötu á laugardag og sunnudag. Ókeypis aðgangur er á leikina og hvetjum við alla handknattleiksunnendur til að fjölmenna í Strandgötuna…

  • Sigurbergur áfram hjá Haukum

    Sigurbergur Sveinsson verður áfram í herbúðum Hauka. Þýska stórliðið SG Flensburg Handewitt mun áfram fylgjast með leikmanninum og því ekki loku fyrir það skotið að af flutningi Sigurbergs í raðir þeirra verði að veruleika síðar. Engar viðræður áttu sér stað á milli liðanna um mögulega þess að Sigurbergur yrði leystur undan samningi. Sigurbergur verður því…

  • Haukastelpur mæta Stjörnunni í bikarnum

    Haukastelpurnar mæta Stjörnunni í átta liða úrslitum Eimskipsbikarsins á miðvikudagskvöldið. Leikurinn fer fram í Mýrinni í Garðabæ og hefst kl. 19:30. Ljóst er að um erfiðan leik er að ræða gegn sterku liði Stjörnunnar og stelpurnar þurfa að eiga toppleik til að fara með sigur af hólmi. Markvörður Stjörnunnar, Florentina Stanciu, hefur oft reynst erfiður ljár…

  • Ramune semur við Levanger HK

    Ramune Pekarskyte hefur samið við norska liðið Levanger HK sem leikur undir stjórn Ágústs Jóhannssonar. Ramune heldur utan að loknu yfirstandandi keppnistímabili þegar samningur hennar við Hauka rennur út. Ramune mun ætíð skipa veigamikinn sess í hjörtum Haukafólks fyrir frábært starf fyrir félagið undanfarin ár þar sem hún hefur verið meðal allra fremstu handknattleikskvenna deildarinnar….

  • Stórleikur í Safamýrinni á morgun

    Það verður stórleikur í N1-deild kvenna á morgun þegar Haukastelpur heimsækja Framara heim í Safamýrina. Leikurinn hefst klukkan 15:00. Bæði lið töpuðu síðasta leik sínum í deildinni og bæði gegn Val. Haukar töpuðu með fjórum mörkum 31-27 en Framarar með þremur mörkum 25-22 á heimavelli.   Haukar og Fram mættust í N1-deild kvenna 8.nóvember á…

  • SG Flensburg-Handewitt sýnir Sigurbergi áhuga

    Þýska stórliðið SG Flensburg-Handewitt hefur sýnt áhuga á að fá Sigurberg Sveinsson í sínar raðir strax í þessum mánuði en Sigurbergur heimsótti liðið í síðasta mánuði. Engar viðræður hafa þó enn átt sér stað á milli liðanna tveggja um möguleikann á að losa Sigurberg undan samningi en búast má við frekari fréttum af málinu á…

  • Haukastelpur töpuðu

    Haukar mættu Val í gærdag í N1-deild kvenna. Fyrirfram var búist við erfiðum leik enda Valsstúlur taplausar í vetur í deildinni en Haukastelpur hafa verið á mikilli siglingu og unnið fimm leiki í röð. Janft var með liðunum í upphafi en þegar leið á fyrri hálfleikinn komust heimastúlkur yfir og leiddu 17-13 í hálfleik. Seinni…