Tveir ungir og efnilegir leikmenn lánaðir í Hauka
Knattspyrnudeild Hauka hefur gengið frá lánssamningi við tvo unga og efnilega leikmenn sem koma báðir á Ásvelli frá Fylki í Bestu deildinni. Haukafólk ætti að kannast býsna vel við Hall Húna Þorsteinsson en hann lék upp yngri flokkana með Haukum áður en hann gekk í raðir Fylkis fyrir tveimur árum síðan. Hann lék einn leik…
