Fréttir fótbolti

Fréttir úr fótboltanum

  • Nýjar myndir

    Þrátt fyrir slæma frammistöðu og algjört baráttuleysi hjá Íslendingum í dag skemmtu strákarnir í 6 flokk sér konunglega á Ásvöllum. Myndirnar tala sínu máli. Slóðin er: http://6flhaukar.instantlogic.com

  • HK – Haukar 1-0

    Í kvöld sóttu okkar menn HK-inga heim í Kópavoginn. Leikurinn var ansi kaflaskiptur, fyrri hálfleikur var hin ágætasta skemmtun á köflum en sá seinni töluvert bragðminni og meira um baráttu en fótbolta. Heimamenn hófu leikinn af krafti og voru mun betri aðilinn fyrstu tuttugu mínúturnar eða svo, áttu m.a. dauðafæri á 13. mín. sem endaði…

  • Foreldrafundur

    Foreldrafundurinn sem átti að vera í kvöld féll því miður niður en verður þess í stað á þriðjudaginn klukkan 20:30 á Ásvöllum. Umræðuefnið verður Skagamótið á Akranesi 9.-11. júlí. Ég vonast til þess að sjá sem flesta. kv. Óli

  • England-Island

    Næstkomandi laugardag ætla strákarnir í 6 flokk að hittast, panta pizzu og horfa saman á landsleikinn. Það er mæting klukkan 13:00 á Ásvelli og verður létt upphitun fyrir Shellmótið í íþróttahúsinu fyrir leik. Við ætlum að æfa okkur í hulla hopp, sippi, hringjakasti, reiptogi, þrautabraut, limbo og körfuskotum. Strákarnir hafa titla að verja því að…

  • Tap gegn Valsmönnum

    Á föstudagskvöldið tóku okkar menn á móti Valsmönnum í þriðju umferð 1.deildar. Aðstæður til fótboltaiðkunar voru vægast sagt lélegar enda fór leikurinn aldrei á neitt flug. Leikurinn var á heildina mjög tilþrifalítill og bragðdaufur. Gestirnir skoruðu eina mark leiksins um miðjan fyrri hálfleik eftir nokkuð þunga sókn að marki Haukanna. Seinni hálfleikur einkenndist af miklum…

  • Áfram í Bikarnum

    Eftir slappa byrjun í íslandsmóti þar sem við töpuðum 1-4 fyrir Val á ásvöllum þá fengum við bikarleik í gær, mánudag til að bæta um betur. Sá leikur var við UMFH (Ungmennafélag Hrunamannahrepps) og þurftum við að fara á flúðir til að spila leikinn. Í stuttu máli þá var þetta mjög léttur leikur fyrir okkur…

  • Sigur í fyrsta leik íslandsmóts

    Þá var stundin loksins runnin upp. Eftir mikinn undirbúning í vetur tók við íslandsmótið. Segja má að úrslitin hafi verið í samræmi við undirbúninginn. Leikurinn var flautaður af stað klukkan 18:00 og veður til að spila knattspyrnu alveg ágætt, þó svo að völlurinn mætti vera blautari. Við byrjuðum af krafti og skoruðu snemma leiks. Andri…