Sigur í fyrsta leik íslandsmóts

Þá var stundin loksins runnin upp. Eftir mikinn undirbúning í vetur tók við íslandsmótið. Segja má að úrslitin hafi verið í samræmi við undirbúninginn. Leikurinn var flautaður af stað klukkan 18:00 og veður til að spila knattspyrnu alveg ágætt, þó svo að völlurinn mætti vera blautari. Við byrjuðum af krafti og skoruðu snemma leiks. Andri gerði það, einn á móti markmanni eftir frábæra sendingu innfyrir frá Hilmari G. Næst var komið að Grindvíkingum og skoruðu þeir eftir klaufaleg mistök í vörninni, sem þó stóð sig mjög vel í leiknum. Við létum þetta ekki á okkur fá og annar Englendinganna í liðinu, Ryan, kláraði mjög vel færi einn á móti markmanni og kom okkur þar með í 2-1. Stuttu síðar fengum við aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingnum. Hilmar Trausti tók þar frábæra spyrnu inní teiginn og þar var enginn annar en varnarjaxlinn Pétur mættur og tók boltann á lofti og skoraði flott mark. Við vorum ekki hættir því hinn Englendingurinn frá Wimbledon, Luke, kom okkur í 4-1 með því að leika varnarmenn Grindvíkinga uppúr skónum eftir sendingu frá Andra. Eftir að Hilmar Geir hafði verið óheppinn fyrr í hálfleiknum hlaut að koma að því að hann skoraði, sem hann gerði nokkrum mínútum fyrir leikhlé. Síðan 1 mínútu fyrir leikhlé var brotið á Hilmari Geir rétt fyrir utan teiginn. Eftir vel útfærða aukaspyrnu hjá Hilmari Trausta og Hilmari Geir varði markmaður Grindvíkinga skotið og var Andri kominn á boltann og var ekki erfitt að klára það færi enda markmaðurinn niðri og opið mark. Þannig fórum við í hálfleikinn, 6-1 yfir og sáttir.
Seinni hálfleikurinn var þó ekki uppá marga fiska miðað við þann fyrri. Lítið var um færi þó að Ryan og Hilmar Emils voru óheppnir á tímum. Við skoruðum þó eitt mark um miðjan hálfleik. Eftir frábæra sendingu frá Hilmari Emils á vinstri kannti þurfti ekki meira en eitt pot með tánni til að klára færið. Addi kom sterkur inn fyrir Binna snemma í hálfleiknum og kláraði leikinn með prýði. Pálmar kom einnig öflugur inná miðjuna fyrir Ryan og gerði það með sóma. Guðjón á sama tíma kom inn og olli miklum usla á vinstri kanti. Ari og Bjössi komu svo inn þegar nokkrar mínútur voru eftir fyrir Davíð og Andra. Ekki mikill tími fyrir þá að koma sér inní leikinn en gerðu þó sitt, t.d. ber að nefna að Ari átti eitt hörkuskot að marki í lok leiks.

Byrjunarlið:
Mark: Beggi
Vörn: Binni, Pétur, Bjarki, Davíð
Miðja: Hilmar E, Hilmar T, Ryan, Luke
Sókn: Andri, Hilmar G

Mörk: Andri 3, Hilmar G, Luke, Ryan, Pétur

Inná komu:
Addi (Binni), Guðjón (Hilmar E), Pálmar (Ryan), Ari (Davíð), Bjössi (Andri)

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…