Fréttir fótbolti

Fréttir úr fótboltanum

  • Íþrótta- og knattspyrnuskóli Hauka

    Þriðja námskeið Íþrótta- og knattspyrnuskóla Hauka hefst á Ásvöllum mánudaginn 21. júní. Mjög góð þátttaka hefur verið á fyrstu tveimur námskeiðum sumarsins og eru nýir þátttakendur boðnir velkomnir. Skráning eða frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu knattspyrnudeildar eða í vallarhúsi frá 08:45 – 12:00 alla virka daga vikunnar.

  • Síðasta vika KNATTSPYRNUAKADEMÍUNNAR

    Mánudaginn 21. júní kl. 13:00 hefst síðasta vika í Knattspyrnuakademíu Wimbledon og Hauka. Gestakennari þessa viku er Paul Mortimer fyrrum atvinnumaður og núverandi unglingaþjálfari U-16 ára liðs F.C. Wimbledon (sjá mynd). Iðkendur í 5., 4. og 3. aldursflokki eru sérstaklega hvattir til þáttöku. Skrásetning er á netinu eða í hádegi á mánudaginn á Ásvöllum. EINSTAKT…

  • Haukastelpur

    Stelpurnar í 6. flokk lögðu FH stelpurnar í báðum 17. júní leikjunum sem fram fóru á Víðistaðatúni. Fyrri leikurinn fór 3 – 1 fyrir Hauka en seinni leikurinn fór 5 – 0. Stelpurnar stóðu sig frábærlega og fjöldi foreldra stóð á hlíðarlínunni og hvöttu stelpurnar.

  • Haukar-FH

    Alls mættu 41 Haukastrákur á Víðistaðartún. Við unnum tvo leiki, gerðum eitt jafntefli og töpuðum tveimur. Umgjörðin var öll hin glæsilegasta og verðlaunapeningar fyrir hvern dreng. Allir strákarnir stóðu sig vel og voru félagi sínu til sóma. Myndir af Haukastrákunum er hægt að skoða á myndasíðunni.

  • Áfram í bikarnum

    Við mættum ferskir á þessum sólríka degi á hlíðarenda til að mæta Valsmönnum í fyrstu umferð í bikarnum. Leikurinn byrjaði að krafti og bæði lið vildu ekki gefa neitt eftir þar sem það væri ekkert annað tækifæri í svona keppni. Þó byrjuðum við betur og skoruðum snemma leiks. Það var Hilmar Geir sem gerði það,…

  • 17. júní

    Knattspyrnudeild Hauka stendur fyrir veitinga- og blöðrusölu á hátíðarsvæðum í bænum 17. júní. Blöðrusala verður við Hellisgerði áður en skrúðagangan leggur af stað. Veitingasala verður á Víðistaðatúni og svo verður einnig við Hafnarborg um kvöldið. Styðjum Hauka, gleðilega þjóðhátíð.

  • Sigur á Hornafirði

    Við vorum mættir á Hornafjörð 2 tíma fyrir leik eftir um 6 tíma keyrslu. Það var heldur hvasst í veðri í fyrri hálfleik, en versnaði þó í seinni. Þar sem þjálfari okkar, Daði, var að taka út annan leikinn sinn af tveimur vegna þess að hann fékk rautt spjald í síðasta leik liðsins á síðasta…

  • 17. júní leikurinn

    Að venju spilar 7. flokkur karla við FH á Víðistaðartúni 17. júní. Það eiga allir strákarnir að mæta klukkan 09:30. Við verðum með 4-5 lið eins og FH. Hver strákur spilar einn leik og að loknum hverjum leik er verðlaunaafhending. Ég vonast til þess að sjá sem flesta, Óli.