Fréttir fótbolti

Fréttir úr fótboltanum

  • KR-rúllað upp

    Stelpurnar í 4.fl.kv. rúlluðu yfir arfaslakar KR-stúlkur í Vesturbænum dag. Unnu 17-0 og hefði sigurinn getað orðið mun stærri ef við hefðum nýtt betur færin okkar. Liðið a-lið var að láta boltann rúlla vel á milli manna. B-liði vann 7-2 og komst ágætlega frá leiknum en hafa oft spilað betur.

  • Hefst þá aftur fréttaflutningur

    Það er óhætt að segja að mikið hafi gengið á innan meistaraflokksins á undanförnum vikum. Það er vonandi að nú þegar rykið virðist vera að setjast geti menn horft saman fram á veginn og byrjað að vinna að því að koma liðinu á rétta braut. Fyrsti leikur undir stjórn Izudin Daða Dervic var gegn Njarðvíkingum,…

  • Sigur á Fylki í bikarnum, 4-2

    Haukar mættu vel stemmdir og léku á köflum vel saman, sérstaklega í fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var 2-0, bæði mörkin eftir ágætan samleikskafla. Haukar fengu víti í byrjun síðari hálfleiks og komust í 3-0. Í síðari hálfleik komust Fylkismenn meira inn í leikinn og meira jafnræði var með liðunum. Sigur Hauka var þó aldrei…

  • Leiknum við Eyjamenn frestað

    Strákarnir voru mættir á Ásvelli um 12 leytið á föstudaginn 25. júní, tilbúnir að bruna á Bakkaflugvöll og taka relluna yfir til Eyja. Veðrið leit hins vegar ekki vel út, tvísýnt með flug og lítið um gistingu ef við kæmumst ekki til baka að kvöldi. Janus hafði samband við þjálfara Eyjamanna og við bættist að…

  • Grillveisla

    Blásið var til grillveislu 24.júní að Smárahvammi 18, hjá Sigrúnu og Páli, til að þjappa hópnum saman fyrir leikinn við Eyjamenn. Við gæddum okkur á grilluðum hamborgurum, pylsum og grænmetisbátum og horfðum á æsispennandi leik Englendinga og Portúgala. Það náðist betri mynd af grillurunum en af strákunum sem voru niðursokknir í leikinn inni í stofu.

  • Sigurgangan heldur áfram

    Í þetta sinn var það Afturelding sem varð fyrir barðinu á okkur strákunum í 2. flokk. Við mættum nokkuð hressir til leiks eftir erfiða æfingarviku með Paul Mortimer frá Englandi. Leikurinn byrjaði þó nokkuð dauflega og ekkert gerðist fyrr en við fórum í gang eftir 20 mínútur. Um miðjan hálfleik fengum við hornspyrnu frá Hilmari…

  • Sumarsala Barna- og unglingaráðs

    Fimmtudaginn 24. júní nk. verður söluhátíð að Ásvöllum kl. 20. Við verðum með hárskraut, töskur, snyrtivörur, Haukabuffin ásamt ADIDAS vörum frá Músik og Sport á hreint frábæru verði. Vantar ekki alla Haukasokka og stuttbuxur? Saumur og merking munu kynna sína þjónustu. Allir aukahlutir sem eru nauðsynlegir á mót sumarsins verða á boðstólum. Komið og nýtið…