Sigur á Fylki í bikarnum, 4-2

Haukar mættu vel stemmdir og léku á köflum vel saman, sérstaklega í fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var 2-0, bæði mörkin eftir ágætan samleikskafla. Haukar fengu víti í byrjun síðari hálfleiks og komust í 3-0. Í síðari hálfleik komust Fylkismenn meira inn í leikinn og meira jafnræði var með liðunum. Sigur Hauka var þó aldrei í hættu. Fylkismenn skoðurðu á 60. mínutu en Haukar svöruðu að bragði mínútu síðar og staðan var 4-1. Undir lok leiksins náðu Fylkismenn að laga stöðuna í 4-2 sem urðu lokatölur leiksins.