Leiknum við Eyjamenn frestað

Strákarnir voru mættir á Ásvelli um 12 leytið á föstudaginn 25. júní, tilbúnir að bruna á Bakkaflugvöll og taka relluna yfir til Eyja. Veðrið leit hins vegar ekki vel út, tvísýnt með flug og lítið um gistingu ef við kæmumst ekki til baka að kvöldi. Janus hafði samband við þjálfara Eyjamanna og við bættist að völlurinn var varla leikhæfur vegna bleytu. Ákveðið var að fresta leiknum. Nýr leikdagur verður ákveðin um eða eftir helgina. Til að lina þær sálarlegu þjáningar sem frestun leiksins olli bauð Janus upp á æfingu í staðinn.