Sumarsala Barna- og unglingaráðs

Fimmtudaginn 24. júní nk. verður söluhátíð að Ásvöllum kl. 20.
Við verðum með hárskraut, töskur, snyrtivörur, Haukabuffin
ásamt ADIDAS vörum frá Músik og Sport á hreint frábæru verði.
Vantar ekki alla Haukasokka og stuttbuxur?
Saumur og merking munu kynna sína þjónustu.
Allir aukahlutir sem eru nauðsynlegir á mót sumarsins verða á boðstólum.
Komið og nýtið ykkur þetta einstaka tækifæri og gerið góð kaup !
Tökum á móti debet og kreditkortum.
Við verðum með heitt á könnunni
og Portúgal – England á skjánum!