Stórleikur á Ásvöllum í kvöld
Í kvöld kl. 20:00 taka Haukar á móti Þrótturum á Ásvöllum. Ljóst er að ekkert annað en sigur kemur til greina í kvöld ef liðið ætlar að rétta sinn hlut í deildinni. Nú mæta allir á völlinn. Áfram Haukar!
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr fótboltanum
Í kvöld kl. 20:00 taka Haukar á móti Þrótturum á Ásvöllum. Ljóst er að ekkert annað en sigur kemur til greina í kvöld ef liðið ætlar að rétta sinn hlut í deildinni. Nú mæta allir á völlinn. Áfram Haukar!
Þriðjudaginn 6. júlí er boðað til kynningarfundar á deiliskipulagi 3. áfanga Valla ásamt tveim breytingum á deiliskipulagi á svæðinu. Kynnt verður deiliskipulag 3. áfanga Valla, sem nú er í auglýsingu. Einnig verða kynntar tvær breytingar á deiliskipulagi á svæðinu sem einnig eru í auglýsingu þær eru: Vellir-miðsvæði, svæði fyrir verslun og þjónustu. Ásvellir íþróttasvæði Hauka….
Á mánudag 05.07 halda stúlkurnar úr 3.fl.kv. á leið til Danmerkur eða nánar tiltekið á Tivoli-Cup. Undirbúningur fyrir þessa ferð hefur staðið í allan vetur og gengið mjög vel og hefur foreldrastjórn staðið í ströngu og á lof skilið. Stúlkurnar spila einn leiki á þriðjud, einn á miðvikud. og tvo á fimmtudag – síðan er…
Mánudagur 5. Júlí: Æfing kl.19:00 – 20:30 – Ásvellir Þriðjudagur 6.júlí: Hlaupaæfing Miðvikudagur 7. Júlí: Æfing kl.19:00 – 20:30 – Ásvellir Fimmtudagur 8.Júlí: Æfing kl.19:30 – 21:00 – Ásvellir Föstudagur 9. Júlí: Æfing kl.18:00 – 19:00 – Ásvellir Sunnudagur 11. Júlí: Æfing kl.18.00-19:30 – Ásvellir
Á föstudag 2.júlí öttu kappi Haukar og Keflavík í Mfl.kv. á Ásvöllum en leikurinn endaði 1-5 fyrir gestina eftir að staðan hafði verið 0-3 í hálfleik. Tatjana Safranj skoraði mark heimamanna snemma í seinni hálfleik. Svetlana Prodanovic var valin maður leiksins með sinni frammistöðu. Við óskum henni til hamingju með tilnefninguna.
Við fáum Fjölni í 8 liða úrslitum SV í bikarnum, 11. júlí á Fjölnisvelli. Aðrir leikir eru Breiðablik-Víkingur R, Afturelding-Leiknir R, HSH-KR. Dýrmæt stig náðust á móti Keflavík í 2-1 sigri á Ásvöllum 1. júlí. Staðan í hálfleik var 1-0.
Í dag áttust við Haukar og Valur og áttu okkar stelpur ekki í vandræðum með að vinna stórsigur og það í báðum liðum. Mótspyrnan var ekki mikil og þurftu okkar stelpur ekki að hafa mikið fyrir sigrinum. Valsliðið var ótrúlega slakt eða eins og Kr-liðið og vaknar sú spurning hvað eru stúlkurnar að læra hjá…
Dagskrá fyrir utanlandsferð 2. og 3. flokks er væntanleg í næstu viku frá Martyn. Heimasíða mótsins er www.travelandplay.co.uk Nauðsynlegt er að ljúka við greiðslu ferðarinnar fyrir helgi. Bankareikningurinn er: 140-05-22839 Kennitalan er: 170276-5589 Kveðja, Daði Rafnsson
Í gærkvöldi hófst hörkuleikur milli Hauka og Fylkis í 16. liða úrslitum bikarsins. Leikurinn hófst af krafti þar sem það eru engin önnur tækifæri í útsláttarkeppnum sem þessari. Þó svo að Fylkir eru í 2. sæti í A-riðli 2. flokks en við í C-riðli ætluðum við ekkert að gefa eftir. Leikurinn við nokkuð jafn þegar…
Knattspyrnuþjálfurum og öðrum áhugasömum gefst nú tækifæri á að taka þátt í námskeiði á vegum enska knattspyrnusambandsins sem fjallar um þjálfun barna. Námskeiðið skiptist í 6 flokka: Íþróttasálfræði fyrir knattspyrnu, áhugahvöt, hvernig börn læra færni í knattspyrnu, andlegur þroski barna, umhverfi barnsins og námskeiðsmat. Námskeiðið fer fram á netinu, er gagnvirkt og þátttökugjald er um…