Stórleikur á Ásvöllum í kvöld

Hilmar Rafn hefur verið drjúgur í sumar

Haukar taka á móti ÍA á Ásvöllum á í kvöld og hefst leikurinn kl. 20.00.

Strákarnir okkar sigruðu Selfoss á útivelli í síðustu umferð þar sem Hilmar Rafn og Matti Guðmunds skoruðu mörkin. Haukar voru sterkari í leiknum og sýndu flotta spilamennsku.

Strákarnir eru staðráðnir í að fylgja eftir þessum góða sigri en stuðningur Haukafólks er gríðarlega mikilvægur, sérstaklega þar sem búast má við fjölmenni ofan af Skaga.

Liðið er sem stendur í 6. sæti deildarinnar með 14 stig en Skaginn, sem er í öðru sæti með 18 stig, tapaði fyrir KV í síðustu umferð á heimavelli 0 – 1.

Miðað við stöðuna í deildinni má búast við mikilli spennu fram á síðustu umferð mótsins. Okkar menn hafa verið á góðu skriði í síðustu leikjum, fyrir utan smá skell gegn KA, og þurfa stuðning alls Haukafólks.

Fjölmennum á Ásvelli á fimmtudaginn – Áfram Haukar!

Stórleikur á Ásvöllum í kvöld

Í kvöld kl. 20:00 taka Haukar á móti Þrótturum á Ásvöllum. Ljóst er að ekkert annað en sigur kemur til greina í kvöld ef liðið ætlar að rétta sinn hlut í deildinni.
Nú mæta allir á völlinn.

Áfram Haukar!