Baldvin Már í æfingahóp U16

Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U16 ára landsliðsins hefur kallað saman hóp til æfinga dagana 30. Jan – 1. feb. Æfingarnar fara fram í Miðgarði í Garðabæ.

Baldvin Már Víðisson, leikmaður 3. flokks karla, hefur verið valinn til að taka þátt í landsliðs æfingum U16 ára landsliðsins. Baldvin Már er fæddur árið 2007 og er á eldra ári í 3. flokki. Baldvin Már er sterkur, fljótur og tæknilega góður leikmaður sem getur leyst flestar stöður á vellinum en spilar helst sem miðvörður í 3. flokki.

Knattspyrnudeild Hauka óskar Baldvini innilega til hamingju með valið og óskar honum góðs gengis á æfingum með U16.

Baldvin Már

Baldvin Már