Gleðifréttir, knatthús rís á Ásvöllum.

Þær ánægjulegu fréttir voru að berast af fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar sem haldinn var í dag, 20. október,  að fyrirliggjandi tilboð í byggingu knatthússins hefði verið samþykkt.  Íslenskir Aðalverktakar hf. áttu lægsta tilboð í byggingu hússins  og var tilboðsfjárhæðin 3.4 milljarðar og  því ljóst að gengið verður til saminga við fyrirtækið.  Haukar hafa lengi óskað eftir betri aðstöðu fyrir knattspyrnuiðkun á Ásvöllum og samþykkt bæjarráðs frá í morgun er  því mikið fagnaðarefni.  Knattspyrnufélagið Haukar afsalaði sér hluta af skipulögðu íþróttasvæði félagsins undir íbúðabyggð til stuðning verkefninu, en lóðin var seld til byggingarfélags fyrir um 1,3 milljarða króna.

Langþráður draumur um byggingu myndarlegs knatthúss er því að verða að veruleika.

Knattspyrnufélagið Haukar þakkar bæjaryfirvöldum fyrir þann stórhug að hefja byggingu knatthúss sem svo sannarlega mun efla og styrkja möguleika til fjölbreyttrar íþróttaiðkunar á Ásvöllum og styrkja þannig enn frekar innviðauppbyggingu í nærumhverfi Ásvalla.

Áfram Haukar!