Guðrún Inga endurnýjar samning við Hauka

Guðrún Inga Gunnarsdóttir hefur skrifað undir 2 ára samning við knattspyrnudeild Hauka.

Guðrún Inga er fædd árið 2006 og spilar oftast á kanti eða sem bakvörður. Hún á að baki sex leiki með meistaraflokki kvenna og hefur verið valin í úrtök hjá yngri landsliðum.

Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar nýjum samningi Guðrúnu Ingu sem er ein af mikilvægum leikmönnum í framtíðaruppbyggingu meistaraflokks kvenna.