Styttist í þriðja leik

Nú er að duga eða drepast hjá stelpunum okkar í þriðja leiknum í eyjum á morgun, komnar upp að veggnum fræga. Úrslitin eru samt engan veginn ráðin. Þær eru í sömu sporum og í fyrra, eru 2-0 undir en það eru þrír leikir í boði ennþá og þá ætla stelpurnar okkar að sjálfsögðu að vinna. […]

Haukar-ÍBV – leikur nr.2 í úrslitum

Stelpurnar okkar urðu að sætta sig við tap gegn ÍBV á Ásvöllum í kvöld 26-27. Ótrúlegur endir á leik sem var spennandi og skemmtilegur í tæpar 60 mínútur. Haukar skoruðu fyrsta markið en síðan var nokkuð jafnræði með liðunum, okkar stelpur þó alltaf skrefinu á undan, 4-2, 8-4, 11-7 en þá kom lélegur kafli og […]

Haukar – ÍBV

Minnum á leikinn hjá stelpunum í kvöld gegn ÍBV sem hefst kl. 19:15. á Ásvöllum. Þetta verður örugglega hörkuleikur og ekki síðri en leikurinn útí í eyjum. Nú er skyldumæting hjá öllu Haukafólki og við styðjum við bakið á stelpunum því þær ætla sér ekkert annað en SIGUR. Mætum snemma því leikmannakynningin verður mögnuð.

KA-Haukar 4-liða úrslit

Frábær sigur 32-35 hjá strákunum okkar á KA á Akureyri í dag í öðrum leik liðanna í 4-liða úrslitum Íslandsmótsins. Okkar menn byrjuðu af krafti, komust í 2-4 en heimamenn náðu fljótt að jafna 4-4 og komust þá yfir. Annars leiddum við yfirleitt leikinn með 1 til 2 mörkum en KA jafnaði á milli. Í […]

ÍBV-HAUKAR

Stelpurnar okkar töpuðu fyrsta leiknum í úrslitarimmunni við ÍBV í Eyjum í dag 29-23. Þær byrjuð leikinn betur komust í 1-4 og voru yfirleitt 1 til 2 mörk yfir en heimamenn náðu að jafna á milli og jafnt var í hálfleik 13-13. Seinni háfleikur byrjaði á svipuðum nótum og sá fyrri, mikil barátta og mikil […]

Haukar-KA 4-liða úrslit

Strákarnir okkar komu vel undan vetri þó það tæki þá smá tíma að átti sig á að sumarið er komið. Þeir unnu öruggan sigur 33-27 á KA í fyrsta leik liðanna í 4-liða úrslitum Íslandsmótsins. Leikurinn var jafn í byrjun, Haukar skoruðu fyrstu tvö mörkin en gestirnir jöfnuðu 2-2 og síðan var jafnt á öllum […]

Næstu leikir

Nú eru páskarnir búnir, sumarið að koma og boltinn að fara af stað aftur og því ekki úr vegi að minna á næstu leiki. Við hvetjum alla Hauka til að mæta á leikina og styðja vel við bakið á liðunum okkar. Hvað er betra en mæta með alla fjölskylduna á pallana og “hrista af sér […]

Nýr „Haukamaður“

Lítill drengur er kominn í heiminn. Einar Örn og Birna Ósk eignuðust prinsinn sinn 10. apríl s.l. og ber hann nafnið Agnar Daði. Við Haukafélagar óskum þeim innilega til hamingju og sendum litlu fjölskyldunni bestu kveðjur.

Haukar-Fram 8-liða úrslit mfl.ka.

Talandi um glæsilegt ………..Strákarnir okkar voru svo sannarlega mættir á Ásvelli í dag þegar þeir gjörsigruðu Fram 43-27. Gestirnir sáu aldrei til sólar á móti geysisterku liði okkar manna. Það var greinilegt að strákarnir komu mjög vel stemmdir til leiks og sýndu hversu öflugir þeir geta verið. Vörnin var firnasterk og markvarslan góð og skilaði […]

4.flokkur karla B Íslandsmeistarar

B-lið 4.flokks karla varð í dag, sunnudag, Íslandsmeistarar B eftir sigur á Selfossi á Seltjarnarnesinu. Haukastrákarnir byrjuðu vel og voru yfir til að byrja með. Selfyssingar jöfnuðu og komust svo yfir og héldu þeirri forystu nánast allan leikinn. Þegar um 5 mínútur voru eftir af seinni hálfleik voru Selfyssingar 3 mörkum yfir en Haukastrákarnir náðu […]