Fréttasafn

  • Flenard Whitfield til liðs við Hauka

    Körfuknattleiksdeild Hauka hefur samið við Flenard Whitfield að leika með karlaliði félagsins næstkomandi vetur. Flenard sem er framherji hefur áður leikið á Íslandi en hann var í liði Skallagríms veturinn 2016-2017 og var m.a. stigahæsti leikmaður deildarinnar sem og næstfrákastahæsti leikmaður deildarinnar. Flenard er 201 sm á hæð og er 29 ára gamall. Frá því…

  • Haukar til Tékklands

    Fyrr í dag var dregið í EHF bikarnum í handbolta og var karlalið Hauka í pottinum en í fyrstu umferð drógust Haukar gegn Talent Robstav M.A.T. Plzen frá Tékklandi. Haukar komu fyrr upp úr skálinni og eiga því rétt á að leika fyrri leikinn heima helgina 31. ágúst eða 1. september og seinni leikurinn fer…

  • Haukar taka þátt í EHF bikarnum

    Meistaraflokkur karla í handbolta tekur þátt í EHF bikarnum. Haukar unnu sér inn rétt til að taka þátt í Evrópukeppni með því að verða deildarmeistarar á liðnu tímabili en sá titill gefur rétt á sæti í Áskorendabikarnum. Haukar sóttu hins vegar um uppfærslu í EHF bikarinn og nú er það ljóst að EHF hefur orðið…

  • Haukastrákar á Opna Evrópumótinu

    Um helgina lauk Opna Evrópumótinu hjá U17 ára karla landsliði Íslands í handbolta en það fór fram í Gautaborg í Svíþjóð. Haukar áttu sína fulltrúa í liðinu en 4 leikmenn Hauka voru valdir í liðið þeir Guðmundur Bragi Ástþórsson, Jakob Aronsson, Kristófer Máni Jónasson og Magnús Gunnar Karlsson. Liðið náði flottum árangri á mótinu en…

  • Yngvi Freyr til Hauka

    Körfuknattleiksdeild Hauka hefur komist að samkomulagi við Yngva Frey Óskarsson að taka slaginn með liði Hauka í Domino‘s deildinni á komandi leiktíð. Yngvi er uppalinn hjá Haukum en hefur undanfarin ár verið við nám í Danmörku og spilað þar. Hann spilaði fyrst með Amager BK en á síðustu leiktíð var hann í liði Holbæk-Stenhus sem…

  • Kristinn Marinósson framlengir

    Kristinn Marinósson hefur framlengt samning sinn við Hauka og mun því taka slaginn með liðinu á komandi leiktíði í Domino’s deildinni. Kristinn lék aðeins 12 leiki í deildinni á síðasta tímabili áður en hann meiddist og var með rúm 11 stig og 2 fráköst að meðaltali í þeim leikjum. Höfuðhögg og aðgerð á fæti héldu…

  • Andlát

    Egill Egilsson, einn af traustustu og elstu félögum okkar er látinn, 93 ára að aldri. Hann var í hópi fræknustu íþróttamanna félagsins á árum áður í knattspyrnu og handknattleik. Hann var varaformaður félagsins um árabil og sat í ýmsum nefndum og ráðum á þess vegum. Egill var útnefndur heiðursfélagi árið 1972. Félagið sendir fjölskyldu Egils innilegar samúðarkveðjur.

  • Rafíþróttadeild?

    Upp hefur komið sú hugmynd að stofna rafíþróttadeild innan Knattspyrnufélags Hauka. Okkur langar til að kanna áhugan á slíku meðal Haukafólks. Endilega gefið ykkar álit með því að smella á linkinn. Skoðun ykkar skiptir máli.

  • 5. flokkur í 2. sæti á Pæjumótinu og 6. flokkur hlaut háttvísisverðlaun á Króksmótinu

    Iðkendur í knattspyrnudeild Hauka hafa að sjálfsögðu tekið þátt af miklum krafti í knattspyrnumótum sumarsins og má m.a. nefna Greifamótið á Akureyri þar sem 7. flokkur kvenna tók þátt og Norðurálsmótið á Akranesi þar sem 7. flokkur karla var á meðal þátttökuliða. Eins og jafnan er á mótum yngstu flokkanna var það leikgleðin sem var…