Flenard Whitfield til liðs við Hauka

Körfuknattleiksdeild Hauka hefur samið við Flenard Whitfield að leika með karlaliði félagsins næstkomandi vetur.

Flenard sem er framherji hefur áður leikið á Íslandi en hann var í liði Skallagríms veturinn 2016-2017 og var m.a. stigahæsti leikmaður deildarinnar sem og næstfrákastahæsti leikmaður deildarinnar.

Flenard er 201 sm á hæð og er 29 ára gamall. Frá því hann lék síðast á Íslandi hefur hann m.a. leikið í Finnlandi og í Kanada og var lykilmaður hjá Karhu í Finnlandi sem varð meistari 2017-2018.

Haukar bjóða Flenard velkominn til félagsins.