Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Aftur á sigurbraut

    Haukar eru komnir aftur á sigurbraut í N1-deild karla í handbolta en þeir lögðu Akureyringa í gær 24-20. Sigurinn var raunar mjög öruggur og áttu gestirnir lítin séns í leiknum. Strax í fyrri hálfleik tóku Haukar afgerandi forystu og leiddu í leikhléi með sex mörkum í stöðunni 14-8. Tvö mörk frá Haukum í upphafi seinni…

  • Haukar taka á móti Akureyri á morgun

    Á morgun mætast Haukar og Akureyri í N1-deild karla í handbolta. Leikurinn hefst kl.18:00 og fer fram hér í Schenkerhöllinni á Ásvöllum. Ítrekað skal að þetta er óvenjulegur leiktími kl.18:00 vegna flugs hjá þeim Akureyringum.  Báðum liðum hefur gengið bölvanlega upp á síðkastið í deildinni, Haukar hafa tapað tveimur leikjum í röð í deildinni og…

  • Mögur helgi í handboltanum

    Það er óhætt að segja að helgin hjá meistaraflokkum okkar Hauka í handbolta hafi verið mögur. Stelpurnar töpuðu í Strandgötunni 21-26 gegn HK á laugardag en strákarnir töpuðu 21-22 gegn ÍR í Austurbergi. Það gengur ekki alveg sem skyldi þessa dagana hjá okka liðum og nokkrir leikir hafa tapast í röð en þá er enn…

  • Ekkert bikarævintýri í ár

    Haukar koma ekki til með að verja bikarmeistaratitil sinn í handbolta, þetta var ljóst eftir 20-24 tap gegn ÍR í 8-lið úrslitum Símabikarsins í gærkvöld. Okkar drengir náðu sér aldrei á strik í leiknum og spiluðu vægast sagt illa í 45 mínútur af þeim 60 sem leikurinn er. Mikið skorti á að einhver leikmaður tæki…

  • Stórleikur í bikarnum í kvöld!

    Í kvöld fer fram sannkallaður stórleikur í Símabikarkeppni karla í handbolta en þá mæta okkar menn ÍR-ingum í Austurbergi kl.19:00. Haukafólk er frægt fyrir að styðja vel við bakið á sínu liði og er algjör nauðsyn að mæta og styðja strákana í kvöld. Við mælum með því að fólk mæti snemma því ÍR-ingar búast við…

  • Tap gegn FH

    Með hverjum sigurleiknum styttist í tapið sagði einhvertíman fróður maður um íþróttir. Sú varð reyndin í gær að Haukar töpuðu sínum fyrsta leik í N1-deild karla í handbolta þennan veturinn þegar FH-ingar komu í heimsókn á Ásvelli og tóku með sér stigin tvö hinu megin í Hafnarfjörð. Það var fyrst og fremst slæm byrjun Hauka…

  • Markmenn eru markverðir

    Það verður sannkallaður nágrannaslagur í N1-deild karla í handknattleik á laugardaginn þegar Hafnarfjarðarliðin, Haukar og FH mætast í DB Schenker-höllinni, að Ásvöllum.  Leikurinn hefst klukkan 15:00. Hafnarfjarðarliðin eru í tveimur efstu sætum deildarinnar, Haukar í því efsta með 25 stig en FH í 2.sæti með 17 stig. Liðin mættust fyrstu umferðinni 10. nóvember á heimavelli…

  • STÓRLEIKUR Á LAUGARDAG!

    Haukar í horni, fjölmennum á Ásvelli á laugardaginn!  Stórleikur í Schenkerhöllinni, laugardaginn 9. febrúar kl:15:00 en þá mætast Haukar – FH í N1-deild karla. Boðið verður upp á vöfflur fyrir leik. Mætum snemma og myndum góða stemmingu fyrir leikinn!  kveðja, stjórn Hauka í horni