Ekkert bikarævintýri í ár

HaukarHaukar koma ekki til með að verja bikarmeistaratitil sinn í handbolta, þetta var ljóst eftir 20-24 tap gegn ÍR í 8-lið úrslitum Símabikarsins í gærkvöld. Okkar drengir náðu sér aldrei á strik í leiknum og spiluðu vægast sagt illa í 45 mínútur af þeim 60 sem leikurinn er. Mikið skorti á að einhver leikmaður tæki frumkvæðið í leiknum í gær sem sannast sérstaklega á því að enginn leikmaður skoraði meira en 3 mörk í gær.

Aron Kristjánsson þjálfari Hauka var í viðtali við Vísi í gær og var svo sannarlega ekki sáttur:

„Við spiluðum bara mjög illa hér í kvöld og vorum virkilega lélegir sóknarlega í 45 mínútur,“ sagði Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka eftir tapið í kvöld.

„Síðasta korterið vorum við farnir að gera það sem lagt var upp með og menn farnir að taka réttar ákvarðanir. Við gerum okkur seku um ótal byrjendamistök í leiknum í kvöld og ég veit hreinlega ekki hversu oft við skutum beint á markvörðinn.“

„Við þurfum heldur betur að skoða sóknarleik okkar frá grunni og leggjast vel yfir hann. Þetta var virkilega dapurt í kvöld.“

„Ég hafði ákveðnar áhyggjur af liðinu eftir þetta langa frí og ég skynjaði ákveðið kæruleysi í liðinu þar sem við vorum með átta stiga forystu á næsta lið í deildinni. Þetta verðum við að laga og vinna mikið í andlega þættinum næstu daga.“ 

Önnur viðtöl og ítarlega umfjöllun um leikinn má sjá á visi.is með því að smella hér

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…