Haukar taka á móti Akureyri á morgun

HaukarÁ morgun mætast Haukar og Akureyri í N1-deild karla í handbolta. Leikurinn hefst kl.18:00 og fer fram hér í Schenkerhöllinni á Ásvöllum. Ítrekað skal að þetta er óvenjulegur leiktími kl.18:00 vegna flugs hjá þeim Akureyringum. 

Báðum liðum hefur gengið bölvanlega upp á síðkastið í deildinni, Haukar hafa tapað tveimur leikjum í röð í deildinni og einnig einum bikarleik inn á milli, Akureyringar hafa tapað fjórum leikjum í röð en reyndar unnið góðan sigur í bikarnum á milli.

Ljóst er að ekki skylda vanmeta Akureyrarliðið þrátt fyrir að mikil meiðsl hafi herjað á liðið í vetur, liðið er skipað efnilegum handbboltamönnum sem berjast til síðasta blóðdropa fyrir lið sitt. Haukamenn eru ekki þekktir fyrir neitt annað en að gera það sama og með góðum stuðningi Haukafólks á morgun er möguleiki að snúa við taflinu eftir slæmt gengi undanfarið.

Allir á völlinn!