Fréttir handbolti

Fréttir úr handboltanum

  • Úrvaldeild kvenna í handknattleik kvenna lokið

    Síðasta Laugardag tryggðu Haukar sér sæti í 8 liða úrslitakeppni íslandsmótssins með sigri á Fylki 31-18.  Ljóst var strax frá fyrstu mínútu að Hauka stelpur ætluðu sér í úrslitakeppnina. Það var mikil skemmtun fyrir áhorfendur á fylgjast með stelpunum í þessum leik sem geisluðu af baráttuvilja og leikgleði.  Viktoría Valdimarsdóttir átti stórleik og skoraði 11…

  • Deildarmeistaratitillinn afhentur á fimmtudag

    Haukar eiga heimaleik í N1-deild karla í handbolta á fimmtudaginn nk. og eru andstæðingar okkar Valsarar. Ólíkt hafast liðin að í deildinni um þessar mundir, Valsarar heyja harða fallbaráttu og eru sem stendur í neðsta sæti deildarinnar en við Haukar höfum þegar tryggt okkur Deildarmeistaratitlinn. Titilinn verður einmitt afhentur með viðhöfn eftir leikinn og hvetjum…

  • Frítt á leik Hauka og Fylkis

    Síðasta umferð N1-deildar kvenna í handbolta þennan veturinn fer fram um helgina. Haukastelpur taka þá á móti Fylki í Schenkerhöllinni kl.13:30 á laugardag. Leikurinn er afar mikilvægur Haukaliðinu því með sigri gulltryggja þær sæti sitt í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn, sem hefst síðar í mánuðinum. Takist Haukum að komast í úrslitakeppni, bíða þeirrar Deildar og nýkrýndir…

  • Haukar og FH mætast í úrslitaleik bikarkeppninnar á sunnudag!

    Á sunnudag er sannkallaður risa leikur á dagskrá þegar Haukar og FH mætast í úrslitaleik Símabikarkeppni 2.flokks karla í handbolta í Laugardalshöll. Leikurinn hefst kl.18:00 og vekjum við sérstaka athygli á því að frítt er á völlinn! Strákarnir okkar lögðu Val á dramatískan hátt um sl. helgi í Íþróttahúsinu í Strandgötu þar sem mikil stemmning…

  • Sigur hjá stelpunum

    Haukastúlkur lönduðu um helgina öruggum og góðum sigri á Aftureldingu í N1-deild kvenna í handbolta. Lokatölur urðu 27-19 fyrir Haukum en í hálfleik var staðan 12-8 Haukastúlkum í vil. Eins og tölurnar gefa til kynna var sigurinn ekki í teljandi hættu og Haukaliðið töluvert betri aðilinn í leiknum. Sigurinn var Haukastúlkum kærkominn í baráttunni um…

  • Haukar mæta HK í kvöld!

    Það er þétt spilað í N1-deild karla í handbolta þessa dagana og er þriðji leikurinn á undanfarinni viku á dagskrá í kvöld. Haukar á móti HK í Schenkerhöllinni og hefst leikurinn kl.19:30. Þetta eru, eins og menn eflaust muna, liðin sem mættust í undanúrslitaeinvíginu í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra en þá fóru HK-menn með…

  • Sigur á Aftureldingu

    Haukar lönduðu erfiðum sigri á Aftureldingu í N1-deild karla í handbolta í gærkvöld á heimavelli þeirra Aftureldingarmanna í Mosfellsbæ, lokatölur urðu 16-13 okkar mönnum í vil. Athugið að þetta eru ekki hálfleikstölur, heldur lokatölur. Eins og markaskorið gefur til kynnar var þetta leikur hinna öflugu varna og skelfilegs sóknarleiks. Það verður seint sagt að Haukar…