Sigur á Aftureldingu

HaukarHaukar lönduðu erfiðum sigri á Aftureldingu í N1-deild karla í handbolta í gærkvöld á heimavelli þeirra Aftureldingarmanna í Mosfellsbæ, lokatölur urðu 16-13 okkar mönnum í vil. Athugið að þetta eru ekki hálfleikstölur, heldur lokatölur. Eins og markaskorið gefur til kynnar var þetta leikur hinna öflugu varna og skelfilegs sóknarleiks.

Það verður seint sagt að Haukar hafi spilað vel í leiknum en það skiptir nákvæmlega engu máli því stigin 2 sem þeir fengu í gærkvöld telja jafn mikið og öll önnur að sjáflsögðu. 

Hægt er að lesa um þennan vægast sagt sérstaka handboltaleik með því að smella hér