Stórleikur á Schenkervellinum í kvöld!

HaukarÍ kvöld er sannkallaður stórleikur í Deildabikarkeppni karla í fótbolta þegar okkar menn í Haukum taka á móti sigursælasta liði Íslands í knattspyrnu, KR.

Það verður forvitnilegt að sjá hvernig okkar strákum, sem leika í 1.deild reiðir af gegn ríkjandi bikarmeisturum KR, sem spila í efstu deild.

Það skal tekið fram að frítt er á leikinn eins og alla aðra leiki í Deildabikarnum. Leikurinn hefst kl.19:00 og er eins og áður sagði á Schenkervelli okkar Haukamanna.