Frábær sigur í gær, næsta stríð á sunnudag
Haukar unnu heldur betur sætan og mikilvægan sigur á ÍR-ingum í þriðja leik liðanna í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla í gærkvöld. Lokatölur urðu 25-24 í rafmögnuðum spennu leik. Okkar menn voru sterkari framan af og leiddu með 1-2 mörkum lengst af fyrri hálfleik en í hálfleik var jafnt 12-12. Gestirnir úr Breiðholtinu byrjuðu…
