Vel heppnaðar handboltabúðir um páskana

Handboltabúðir Hauka heppnuðust mjög vel!

Það var mikið fjör og gaman í handboltabúðum Hauka um páskana.  Þátttakan var góð og krakkarnir lögðu sig alla fram í að læra ný tækniatriði og skotafbrigði. Stelpurnar voru nokkuð margar og gáfu strákunum ekkert eftir.

Það var einnig spennandi og skemmtilegt að fá gesti frá Þýskalandi en 23 drengir fæddir 2000 og 2001 frá Hannover/Burgdorf tóku þátt í búðunum. Síðan var spilaður „alvöru æfingalandsleikur“ við strákana okkar í 5. og 6. flokki á þriðjudeginum. Þar fóru okkar drengir á kostum og sýndu að þeir eru búnir að vera duglegir að æfa.

Hápunkturinn var síðan heimsókn frá landsliðsmönnunum Ingimundi Ingimundarsyni og Sturlu Ásgeirssyni ásamt landsliðskonunni Hrafnhildi Skúladóttur. Þau eru öll flottar fyrirmyndir og gáfu sér góðan tíma til að bæði spjalla við og þjálfa krakkana. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna.

Við horfðum á spóluna  „ Frá byrjanda til landsliðsmanns“. Hún hentar öllum aldurshópum og er mjög góð fyrir þá sem vilja sjálfir reyna að bæta sig og læra ný tækniatriði. Sturla og Ingimundur bjóða ykkur hana á tilboðverði; 2500. Tilvalin afmælisgjöf. Pantanir á netfangð: ihuldabjarna@aslandsskoli.is                                            

Framtíðin er greinilega björt hjá Haukum og við vonum að allir haldi áfram að æfa svona vel og bæta sig.                                               

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…