Lokahóf körfuknattleiksdeildar

Árlegt lokahóf körfuknattleiksdeildar verður haldið með pompi og prakt á föstudaginn næstkomandi í veislusal félagsins að Ásvöllum. Verður árið gert upp í máli og myndum og því upplagt tækifæri til að koma og gleðjast með leikmönnum, stjórnarmönnum og stuðningsmönnum.

Veislustjóri að þessu sinni verður söngvarinn og skemmtikrafturinn Ingvar Jónsson.

Húsið opnar kl. 19:00 og hefst borðhald um kl. 20:00 þar sem boðið verður upp á eitthvað góðmeti af grillinu og svo kaka með kaffinu í eftirrétt.

Verð á hófið er 2500 krónur fyrir Hauka í horni en 3500 fyrir aðra og eru skráningar í fullum gangi á brynjarorn@haukar.is

Lokahóf körfuknattleiksdeildar

Vegna smá tækniörðuleika hefur verið ákveðið að framlengja sölu á aðgöngumiðum lokahófs körfuknattleiksdeildar til miðvikudags.

Salan hefur farið ágætlega af stað og er hægt að nálgast miða í dag og á morgun, miðvikudag, í afgreiðslunni á Ásvöllum. Miðaverð er sem fyrr 2000 fyrir Hauka í horni og 3000 krónur fyrir aðra.

Lokahóf körfuknattleiksdeildar